Trén tefja snjóruðning

Snjór á trjánum í Reykjavík í morgun.
Snjór á trjánum í Reykjavík í morgun. mbl.is/Golli

Trjágróður sem vex út á stíga tefur för snjóruðningstækja í borginni og í gegnum árin hefur komið fyrir að stígum hafi verið sleppt úr til að valda ekki tjóni á tækjum og hættu á slysum.  Þá eru dæmi um að ljós hafa brotnað af tækjunum með tilheyrandi kostnaði, segir í frétt frá Reykjavíkurborg.

 Stjórnendur snjóhreinsunar skoðuðu í september hvar líklegt er að trjágróður muni hindra för snjóruðningstækja á forgangsleiðum og fundu um 1.500 staði. Þar af voru um 200 staðir sem tilheyra borginni sjálfri og að undanförnu hafa starfsmenn gert átak í að klippa trjágróður á borgarlandi.

 Reykjavíkurborg hvetur garðeigendur að klippa trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk, ekki eingöngu vegna snjóruðningstækjanna, heldur einnig til að sýna samborgurum sínum tillitssemi. Greinar sem hjólreiðafólk lendir á geta valdið slysum. Þá er einnig mikilvægt að huga að gróðri sem vex fyrir umferðarmerki eða byrgir götulýsingu. 

Snjór á göngustígum Reykjavíkurborgar í morgun.
Snjór á göngustígum Reykjavíkurborgar í morgun. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert