6 í fangageymslu

mbl.is

Sex gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Kemur fram í upplýsingum frá lögreglu að fyrir því séu ýmsar ástæður.

Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi kom fram að hópur albanskra flóttamanna hafi verið hnepptur í varðhald sem hópurinn þarf væntanlega að sæta þangað til innanríkisráðuneytið úrskurðar um það hvort að ákvörðun útlendingastofnunar um að vísa þeim úr landi hafi verið réttmæt eða ekki.

Ekki kom fram í frétt Stöðvar 2 hversu fjölmennur hópurinn væri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert