Íhugar að flytja til Reykjavíkur

Listakonan Yoko Ono sem í dag var útnefnd heiðursborgari Reykjavíkur hefur oftsinnis íhugað að flytja til Reykjavíkur og kaupa þar hús. Hún sagðist gríðarlega ánægð með þá ákvörðun borgaryfirvalda að útnefna sig heiðursborgara og telur það til merkis um að hún hafi gert eitthvað rétt.

Yoko Ono settist niður með blaðamanni í Höfða í kjölfar þess að hún var útnefnd heiðursborgari. Hún ræddi meðal annars um Friðarsúluna sem tendruð verður í sjöunda skipti í kvöld og sagðist hafa fundið fyrir miklum efasemdum fjölmiðla þegar hún tilkynnti um fyrirætlan sína að koma fyrir friðarsúlu á Íslandi. Þær efasemdaraddir hafi hins vegar þagnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert