Aðstæður stúdenta á leigumarkaði verði jafnaðar

Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar.
Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar.

Þingflokkur Bjartrar framtíðar hefur lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um húsaleigubætur þannig að stúdentar sem leigja saman á almennum markaði njóti sömu kjara og þeir sem fá sérstakar stúdentaíbúðir.

 Í fréttatilkynningu frá Bjartri framtíð segir að húsnæðisvandi námsmanna á framhalds- og háskólastigi sé allverulegur og námsgarða skorti mjög. „Í ljósi þess að ekki er nægilegt framboð af heimavist eða námsgörðum, og fjölmargir námsmenn geta því ekki nýtt sér slíkt búsetuúrræði, er lagt til að aðstæður stúdenta verði jafnaðar og þeir njóti sama stuðnings hvort sem þeir leigja á námsgörðum eða á almennum markaði.“

 Frumvarpið má finna hér á vef Alþingis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert