Fjarlægja flögg og eyjur á Hofsvallagötu

Hofsvallagata heldur áfram að taka breytingum.
Hofsvallagata heldur áfram að taka breytingum. mbl.is/Kristinn

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti í gær að gera breytingar á Hofsvallagötu í kjölfar ábendinga frá samráðshópi íbúa. Flögg og eyjur sem voru settar upp, og vöktu talsverðar deilur, verða fjarlægðar en hjólastígurinn verður óbreyttur að gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar.

Fulltrúar Samfylkingarinnar, Hjálmar Sveinsson og Kristín Soffía Jónsdóttir, fulltrúar Besta flokksins, Páll Hjaltason, Elsa Hrafnhildur Yeoman og Karl Sigurðsson og fulltrúi Vinstri grænna, Sóley Tómasdóttir, samþykktu breytingarnar á meðan fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá.

Í bókun meirihlutans segir:

„Samráðshópi íbúa er þakkað kærlega fyrir góðar ábendingar um hönnun og útfærslu á Hofsvallagötu og fallast á þær tillögur sem fram koma í umsögn minnisblaðs Umhverfis- og skipulagssviðs og hafa verið kynntar samráðshópi íbúa, þó með þeirri undantekningu að hjólastígurinn verði óbreyttur að gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar og ein akrein verði áfram að gatnamótunum. Fyrirkomulag hjólastígsins er tilraun fram að endanlegri hönnun götunnar sem fyrirhuguð er á næsta ári og því mikilvægt að fá reynslu á fyrirkomulagið áður en framkvæmt er til lengri framtíðar. Þær breytingar sem nú eru fyrirhugaðar skulu kynntar samráðshópi og íbúum.

Í drögum að fjárhagsáætlun árið 2014 er gert ráð fyrir varanlegum framkvæmdum á Hofsvallagötu. Lögð er áhersla á að samráð skuli haft við íbúa og hverfisráð Vesturbæjar við hönnun og undirbúning þeirrar framkvæmdar.“

Réttara að viðurkenna mistök

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þau Júlíus Vífill Ingvarsson, Hildur Sverrisdóttir og Óttarr Guðlaugsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Í bókun þeirra segir: „Tekið er undir þakkir til íbúa sem hafa unnið með Umhverfis og skipulagssviði í framhaldi af opnum fundi í Hagaskóla. Rétt er að halda til haga að fyrsta tillaga samráðshóps íbúa var að framkvæmdin yrði tekin til baka og gatan endurhönnuð frá grunni. 

Breytingar á umferðarskipulagi Hofsvallagötu koma nú í fyrsta skipti inn í Umhverfis og skipulagsráð til afgreiðslu. Íbúum var ekki gefinn kostur á að gera athugasemdir áður en ráðist var í framkvæmdir en fengu fyrst tækifæri til að tjá sig á opnum fjölmennum íbúafundi í Hagaskóla þar sem andstaða við breytingarnar kom mjög skýrt fram.

Ekki er lagst gegn því að fjarlægja flögg og eyjur til að auðvelda umferð og skýra betur akstursleiðir. Réttara væri þó að viðurkenna að hér voru gerð mistök sem betra er að leiðrétta með því að stíga til baka og byrja á byrjuninni.

Eðlilegt er að kynningarfundur verði haldinn í hverfinu um þær tímabundnu aðgerðir sem gerðar verða áður en farið verður í endanlega hönnun götunnar sem mikilvægt er að verði í víðtæku samráði.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert