Bjarki hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar

Elsa Hrafnhildur Yeoman, forseti borgarstjórnar, og Bjarki Karlsson ásamt dóttur …
Elsa Hrafnhildur Yeoman, forseti borgarstjórnar, og Bjarki Karlsson ásamt dóttur hans, Þuríði Rósu, í Höfða. mbl.is/Árni Sæberg

Bjarka Karlssyni voru veitt Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2013 við hátíðlega athöfn í Höfða í dag en verðlaunin hlaut hann fyrir ljóðahandritið Árleysi alda. Verðlaunin voru veitt af Elsu Hrafnhildi Yeoman, forseta borgarstjórnar, en þau nema 600 þúsund krónum og árituðu viðurkenningarskjali frá borgarstjóra. Fyrstu eintök af bókinni komu á sama tíma úr prentun í útgáfu Uppheima.

„Bjarki Karlsson er doktorsnemi í íslenskri íslenskri málfræði og bragfræði við Háskóla Íslands. Rannsóknarsjóður Háskóla Íslands styrkir rannsóknina Bundið mál á vestur-norrænu málsvæði á síðari öldum og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum veitir honum  vinnuaðstöðu. Bjarki lauk M.A. gráðu í íslenskum fræðum við Hugvísindadeild Háskóla Íslands 2007 og B.A. gráðu í íslensku og almennum málvísindum við HÍ 2005. Árið 1987 varð hann kerfisfræðingur frá Niels Brock-skólanum í Kaupmannahöfn,“ segir í fréttatilkynningu.

Fram kemur í umsögn dómnefndar að framlag Bjarka sé „óvenju vel heppnuð blanda af húmor, fornum bragarháttum og samfélagsádeilu. … Handritið snýst í rauninni í kringum leik með gamla bragarhætti og tilfinningin er sú að hin mikla þekking sem höfundur hefur á þeim hafi knúið hann til að nota þá – og ekki síst miðla þeim til yngri eyrna; hann tekur sér stöðu eins og hirðskáld eða höfuðskáld til forna og yrkir um samtíma sinn á fjölbreytilegan hátt. Það er allan tímann skýrt að höfundur hefur framúrskarandi vald á bragarháttunum og hefur náð að flétta það vald saman við skarpa samfélagsádeilu og slynga orðaleiki sem gefa handritinu öllu einstakt gildi og dýpt.  Aukinheldur á sér stað í handritinu lífleg endurvinnsla á menningararfinum og endurvinnsla á hugmyndum okkar um þjóðskáldin og yrkisefni þeirra. … Hér er ort af mikilli íþrótt, metnaði og einurð, en þó er leikurinn með tungumálið, kenningar og arfinn alltaf svo mikill að unun er að lesa.“

Dómnefndina skipuðu Sigurbjörg Þrastardóttir, Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir og Davíð Stefánsson formaður nefndarinnar. Samtals bárust 46 handrit að þessu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert