Þorbjörg Helga sækist eftir oddvitasæti

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að bjóða sig fram í efsta sæti prófkjörs Sjálfstæðislokksins í Reykjavík sem fram fer 16. nóvember næstkomandi. 

Áður hefur Júlíus Vífill Ingvarsson lýst framboði í efsta sætið og þeir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagst vera að íhuga málið.

„Ég gef kost á mér í fyrsta sæti í Reykjavík fyrir komandi sveitastjórnarkosningar í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Ég er í stjórnmálum af hugsjón og skólamálin eru forgangsmál. Helsta verkefnið í dag er að bæta skólakerfið. Ef engar breytingar eiga sér stað og að flatur niðurskurður verður áfram staðreynd endum við með skólakerfið í sömu stöðu og heilbrigðiskerfið. Það er nauðsynlegt að auka gegnsæi og aðhald í fjármálum með skýrri langtímastefnu. Ég vil lifandi og heilbrigða borg sem er full af valkostum í húsnæðismálum, samgöngukostum og skólamálum. Það er tímabært að innleiða breytingar í borginni.” segir Þorbjörg Helga.

Þorbjörg Helga er með meistaragráðu í námssálarfræði frá University of Washington í Bandaríkjunum og BA próf frá Háskóla Íslands í uppeldisog menntunarfræði. Áður en hún tók sæti í borgarstjórn var hún ráðgjafi Menntamálaráðherra og starfaði þar áður við kennslu og verkefnastjórnun í Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands. Þá hefur Þorbjörg meðal annars setið í stjórnum fyrirtækja Reykjavíkurborgar, í stjórn Lánasjóðs Sveitarfélaga og Háskólaráði Háskóla Íslands.

Frétt mbl.is: Borgarfulltrúar misnotuðu veikindi Ólafs

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert