Fundu sigketil á Hofsjökli

Eftir að starfsmenn Veðurstofu Íslands sáu dökkan flekk í norðanverðri brún Hofsjökuls á mynd úr gervihnettinum Landsat 8 var ákveðið að kanna málið nánar. Í haustmælingaferð Veðurstofunnar á Hofsjökul 9. október s.l. var svo staðfest að þar var um 30-50 m djúpur sigketill.

Frá þessu er greint á vefsvæði Veðurstofu Íslands. Þar segir að 21. ágúst 2013 hafi Skagfirðingar orðið varir við mikinn brennisteinsþef úr Vestari-Jökulsá í Skagafirði og jafnframt var áin óvenjulega gruggug og grásilfruð á litinn. Starfsmenn Veðurstofunnar fóru á vettvang, tóku sýni af hlaupvatninu og gengu úr skugga um að það kom undan jökuljaðrinum í austustu upptakakvísl Vestari-Jökulsár. Hlaupið náði hámarki 24. ágúst en hjaðnaði svo á 3-4 dögum. Rennsli árinnar jókst ekki svo að vandræði hlytust af.

Þann 24. september barst svo mynd af Hofsjökli úr gervihnettinum Landsat 8. Í norðanverðri brún jökulsins í um 1700 m y.s. mátti sjá dökkan flekk sem ekki var að vænta á þessum slóðum.

Í haustmælingaferð Veðurstofunnar á Hofsjökul 9. október s.l. var svo staðfest að þar var um 30-50 m djúpur sigketill, aflangur til vest-norðvesturs og um 700 metrar á lengri veginn.  Yfirborð jökulsins þar var mikið sprungið.

Rúmmál ketilsins var áætlað um 106 m3 eða um ein milljón rúmmetra.

„Gera má ráð fyrir að undir jöklinum á þessum stað sé jarðhitasvæði og þá væntanlega háhitasvæði. Ekki er ljóst hvort það er nýlegt eða gamalgróið. Oft hefur orðið vart brennisteinsfýlu við norðurjaðar jökulsins en ekki mælst jarðhitavatn í afrennslinu þar þrátt fyrir vandaðar mælingar. Leitað hefur verið að jarðhita undir jöklinum með viðnámsmælitækjum á árangurs.

Undanfarinn aldarfjórðung hafa starfsmenn Veðurstofunnar og Orkustofnunar farið um jökulinn tvisvar til fjórum sinnum á ári til mælinga. Samt hefur ekki áður orðið vart sigkatla af þessari gerð í Hofsjökli. Óvíst er hvort vænta megi hlaupa frá jarðhitasvæðinu á næstu árum,“ segir í frétt Veðurstofu Íslands.

Veðurstofan telur rétt að vara alla ferðamenn á Hofsjökli við ef farið er um þessar slóðir enda eru miklar sprungur umhverfis sigketilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert