Yoko hvetur Jón til að halda áfram

Listakonan Yoko Ono - og heiðursborgari Reykjavíkur - lofsamaði Jón Gnarr borgarstjóra í ræðu sinni þegar hún tók við útnefningunni í Höfða á miðvikudag. Hún sagði Jón hafa unnið gott starf í borgarmálum og þjónað borg sinni vel þann tíma sem hann hefur gegnt embætti borgarstjóra. Þá hvatti hún Jón til að halda áfram í stjórnmálum og bjóða sig fram að nýju í sveitarstjórnarkosningunum á næsta ári.

Jón hefur ekki enn gefið út hvort hann muni gefa kost á sér áfram á lista Besta flokksins en það ætlar hann að gera 30. október næstkomandi. Í samtali við blaðamann mbl.is ýjar hann þó að því að hvatning Yoko skipti hann máli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert