Fagnar tillögu um nýjan landspítala

Helgi Hjörvar
Helgi Hjörvar Ómar Óskarsson

„Það kallar á skýringar, hvað veldur andstöðu forsætisráðherrans og einstakra þingmanna Framsóknarflokksins við áform um nýjan Landspítala.“ Þetta sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag. Benti hann á mikilvægi þess að heilbrigðismálin séu í forgangi þegar forgangsraða á í ríkisfjármálum. 

Fyrr í dag sagði Mbl.is frá því að þrír þingmenn úr þremur flokkum eru fyrstu flutningsmenn tillögu um að hraða byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. 

Mikilvægara að endurnýja tækjakost

Þorsteinn Magnússon, þingmaður Framsóknarflokksins tók þá til máls um sama efni. Hann tók undir þau orð Helga um að forgangsraða yrði í þágu heilbrigðismála, en að brýnna sé að endurnýja tækjakost og styrkja innviði spítalans, heldur en að hefja byggingu nýs spítalahúsnæðis. Þorsteinn benti svo á verkefni sem hægt væri að bíða með til þess að auka fjármagn til heilbrigðismála. „Ég vil nefna atriði sem minna máli skipta, þótt mikilvæg séu. Í því fjárlagafrumvarpi sem liggur fyrir í þinginu var gert ráð fyrir 5 mia króna í viðhaldsverkefni á vegum vegagerðarinnar, stofnkostnaðar vegna framkvæmda 8,2 mia króna og 1 mia króna í stofnkostnað vegna nýrrar fangelsisbyggingar. Þetta eru allt eflaust brýn verkefni, en tæplega jafnbrýn og það verkefni að hlúa að þeim sem eru sjúkir.“

Þorsteinn Magnússon
Þorsteinn Magnússon
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert