Segir Füle fara frjálslega með

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, og Štefan Füle stækkunarstjóri Evrópusambandsins á …
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, og Štefan Füle stækkunarstjóri Evrópusambandsins á blaðamannafundi í sumar. Skjáskot/EbS Channel

„Þessi fullyrðing stækkunarstjórans sýnir að það er brýnt að réttar upplýsingar um stöðu viðræðnanna við ESB séu á borðinu. Þess vegna mun sá þáttur einmitt verða hluti af þeirri úttekt sem ég mun kynna fljótlega á nýju ári.“

Þetta segir í yfirlýsingu frá Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra, vegna þeirra ummæla Štefan Füle, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, í gær að hann teldi að viðræður um inngöngu Íslands í sambandið hefðu „ekki verið það langt frá því að leggja fyrir Íslendinga samning sem hefði tekið tillit til sérstöðu Íslands en um leið grundvallarreglna Evrópusambandsins og allra reglna leiksins.“ Segir ráðherrann að þar sé farið heldur frjálslega með.

„Staðreynd málsins er sú að öll stærstu málin í þessum viðræðum stóðu enn út af þegar hlé var gert á þeim. Þrátt fyrir að margir samningskaflar höfðu verið opnaðir og um þriðjungi lokað, þá fær það ekki staðist að stutt hafi verið í samningsniðurstöðu þegar kaflar um sjávarútveg og landbúnað höfðu ekki verið opnaðir svo ekki sé minnst á þá staðreynd að ESB hafði ekki einu sinni afgreitt sína eigin rýniskýrslu um sjávarútvegskaflann,“ segir í yfirlýsingunni og ennfremur:

„Þessi fullyrðing stækkunarstjórans sýnir að það er brýnt að réttar upplýsingar um stöðu viðræðnanna við ESB séu á borðinu. Þess vegna mun sá þáttur einmitt verða hluti af þeirri úttekt sem ég mun kynna fljótlega á nýju ári.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert