Lýst eftir Brynju Mist

Brynja Mist Snorradóttir
Brynja Mist Snorradóttir

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Brynju Mist Snorradóttur en hún er 16 ára gömul.

Brynja er 163 cm á hæð, 50 kg, grannvaxin, með græn augu og með sítt ljóst aflitað hár. Brynja var klædd í svarta úlpu með loðkraga og í svarta strigaskó þegar hún hvarf frá heimili sínu í fyrrakvöld.

Vinsamlegast látið lögreglu vita í síma 444-1000 ef einhverjar upplýsingar er að fá um hana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert