Fjölmennt lögreglulið er nú í Gálgahrauni þar sem mótmælendur haf safnast saman. Lögreglan hefur borið nokkra þeirra burt af svæðinu en þeir mótmæla lagningu nýs Álftanesvegar.
Heimildir mbl.is herma að í kringum fjörutíu lögreglumenn úr mannfjöldastjórnunarsveit lögreglunnar séu á staðnum en lögreglan hefur meðal annars lokað Álftanesveginum fyrir almennri umferð.