„Höfum líka skoðun á Gálgahrauni“

Ýmislegt hefur breyst á þeim 10 árum sem liðin eru frá því að Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi voru stofnuð á þann 24. október 2003, nú er t.d. algengara að hópurinn viðri skoðanir á málum sem ekki eru tengd innflytjendamálum. Helstu verkefnin eru þó enn tengd félagslegum vandamálum og að vinna gegn staðalmyndum.

Stofnun samtakanna þann 24. október er að sjálfsögðu táknræn þar sem kvennafrídagurinn var haldinn á þeim degi árið 1975 undir einkunnarorðunum „ég þori, get og vil“. Hér má sjá áhugavert viðtal við Björgu Einarsdóttur um daginn sögufræga árið 1975 sem birtist í lesbók Morgunblaðsins.   

Mbl.is ræddi í dag við þær Barböru J. Kristvinsson formann samtakanna og Sabine Leskopf fyrrverandi formann um starfið á undanförnum 10 árum.

Hér má sjá grein sem Barara ritaði í tilefni af afmælinu:

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi 10 ára!

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi voru stofnuð 24. október 2003 og halda þess vegna upp á 10 ára afmæli sitt. Veisluhöldin verða laugardaginn 26. október á Túngötu 14, frá kl. 14-17. Boðið er upp á léttar veitingar og líflega dagskrá með ræðuhöldum og skemmtun. Opið er fyrir heiðursgesti og félagskonur.

Hlutverk Samtakanna er að sameina, takast á við og ljá hagsmuna- og áhugamálum kvenna sem sest hafa að á Íslandi rödd. Markmið Samtakanna er að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af erlendum uppruna á öllum sviðum þjóðlífsins. 10 ára afmæli er góður tímapunktur að staldra aðeins við í dagsins önn og lita yfir farinn veg, endurskoða eigið hlutverk og meta hvort markmiðin hafa náðst. Svarið þarf víst að vera já, að mörgu leyti þó enn sé svo margt að gera.

Þegar við byrjuðum í þessu starfi voru staðalmyndir kvenna af erlendum uppruna ríkjandi. Ef yfirleitt var tekið eftir þeim var talað um þær en aldrei við þær. Fyrir tíu árum áttu raddir með hreimi ekki heima í fjölmiðlum, en það hefur breyst, fólk af ólíkum uppruna tekur þátt í umræðunni og vonumst við að hafa á einhvern hátt stuðlað að því, en þess má geta að tvær konur af erlendum uppruna, Grazyna Okuniewska og Amal Tamimi, hafa á þeim tíma tekið sæti á Alþingi og hafa báðar tvær verið stjórnarkonur í Samtökum kvenna af erlendum uppruna.

Tækifærin til þátttöku hafa verið mörg og oft snertir starfið ekki einungis konur af erlendum uppruna: við höfum sent inn fjölmargar umsagnir um lagabreytingar sem snerta kven- og mannréttindi, haldið ræðu á hverju ári á alþjóðlegum barráttudegi kvenna, skrifað margar greinar í blöð og farið í fjölmörg viðtöl í sjónvarpi og útvarpi.

En slík vinna vinnst ekki í einangrun heldur einungis í samstarfi og það samstarf við önnur félagasamtök, stofnanir og einstaklingar bæði hér og erlendis hefur verið okkur mikil stoð. Þar er varla hægt að gefa upp tæmandi lista af frábærum samstarfsaðilum í gegnum tíðina, en helst ber þar að nefna samtök sem tilheyra kvennahreyfingunni á Íslandi eins og Kvennaathvarfið, Kvenréttindafélag Íslands eða UNIFEM, en einnig Rauða kross Íslands, Fjölmenningarsetrið, Reykjavíkurborg, ýmis ráðuneyti, Alþjóðahús, Borgarbókasafn og Mannréttindaskrifstofu Íslands, og svo mætti lengi telja. Við höfum tekið á móti systrasamtökum frá mörgum löndum og heimsótt þau til að vinna saman, læra af þeim og alls staðar, nú síðast á málþing í boði Institute for Cultural Diplomacy í Berlín, er fólk agndofa yfir þeim árangri sem náðst hefur hér. Einnig erum við með fulltrúa í ýmsum ráðum, stjórnum og teymum, eins og  stjórn um Kvennaathvarf, Allar Heimsins  Konur, teymi um málefni innflytjenda, Rannsóknarstofu í fjölmenningarfræðum og fleiri.

Nokkur dæmi um starfsemi okkar eru tölvunámskeið, bókakynningar, íslensku- og sjálfstyrkingarnámskeið undir heitinu Taktu þátt.  Við bjóðum nú reglulega atburði eins og Söguhring kvenna í samstarfi við Borgarbókasafnið sem hefur sett mark sitt á menningarlíf borgarinnar, þjóðlegt eldhús og jafningjaráðgjöf.

Enn stöndum við samt frammi fyrir fjölmörgum áskorunum, atvinnuleysi er hæst meðal kvenna af erlendum uppruna og þær sem eru með vinnu fá oft ekki tækifæri að nýta menntun sína og reynslu til fulls. Brottfall úr framhaldskólum er hátt meðal innflytjenda og konur af erlendum uppruna eru mjög berskjölduð fórnarlömb heimilisofbeldis því þær þekkja ekki alltaf réttindi sín.

En við erum tilbúnar að takast á við þær áskoranir og um leið og við þökkum öllum þeim sem hafa staðið með okkur í gegnum tíðina viljum við fagna því hvað konur af erlendum uppruna hafa fram að færa til íslensks samfélags.

Barbara J Kristvinsson

Formaður

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert