Trippið barðist um í 45 mínútur

Matvælastofnun telur að tamningaaðferðir sem sýnd var nýverið við kennslu í tamningu hrossa samræmist ekki reglum um dýravelferð. Á kennslumyndskeiði sem sýndi þessa aðferð var annar framfótur á trippi bundinn upp til að koma því úr jafnvægi. Trippið var beitt þessari aðferð í 45 mínútur.

Matvælastofnun birti í dag yfirlýsingu þar sem varað er við notkun á tamningaaðferðum í líkingu við þá sem sýnd var við kennslu nýverið. Stofnuninni bárust ábendingar um aðferðina frá fólki sem var verulega misboðið þegar það sá aðfarirnar við hrossin.

Í kjölfar ábendinganna rannsakaði Matvælastofnun málið og notaðist m.a. við myndbandsupptöku frá sýnikennslunni. „Þar mátti sjá hvernig trippi var gróflega yfirbugað með uppbindingu á öðrum framfæti samtímis þrýstingi á brjóst og herðar. Með jöfnu millibili var togað í bandið til að koma trippinu úr jafnvægi. Eftir 45 mínútna baráttu hjá trippinu við að standast þetta álag, þar sem það féll niður nokkrum sinnum en náði að krafla sig upp aftur, gafst það upp og lagðist. Greinilega sást að það var lafmótt og sveitt eftir átökin og af öllu atferli þess mátti ráða að það var uppgefið. 

Það er niðurstaða Matvælastofnunar að tamningaraðferð þessi byggi á grófri valdbeitingu sem ekki er ásættanleg út frá sjónarmiði dýravelferðar. Aðrar mildari aðferðir eru enda vel þekktar til að ná sama markmiði við tamningar.

Yfirdýralæknir varar við framangreindri tamningaraðferð og telur hana andstæða velferð dýra.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert