Kaupaukar fyrir 100 starfsmenn

Bankinn segist vera í samkeppni um starfsfólk.
Bankinn segist vera í samkeppni um starfsfólk. mbl.is/Ómar

Arion banki hefur innleitt umfangsmikið kaupaukakerfi sem nær til um hundrað starfsmanna. Kaupaukarnir geta að hámarki numið 25% af árslaunum.

Þeir ná ekki til starfsfólks áhættustýringar, greiningardeildar, regluvörslu og innri endurskoðunar, að því er fram kemur í fréttaskýringu um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Fram kemur í svörum frá Arion banka að það sé staðreynd að keppinautar bankans hafi flestir tekið upp hvatakerfi í einhverri mynd. „Því erum við að aðlaga okkur að því starfsumhverfi sem við erum í og styrkja okkur í samkeppni um starfsfólk.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert