Vilja aukið samstarf Íslands og Grænlands

Aleqa Hammond, formaður grænlensku landsstjórnarinnar og Gunnar Bragi utanríkisráðherra funduðu …
Aleqa Hammond, formaður grænlensku landsstjórnarinnar og Gunnar Bragi utanríkisráðherra funduðu í fallegu veðri í Nuuk í dag. Mynd/utanríkisráðuneytið

Í kjölfar fundar Gunnars Braga Sveinssonar, utanríkisráðherra, og Aleqa Hammond, formanns landsstjórnar Grænlands, í Nuuk í dag undirrituðu þau sameiginlega viljayfirlýsingu landanna um aukið samstarf.

Gunnar Bragi átti fund með Aleqa, Karl Lyberth, sem fer með sjávarútvegsmál í landsstjórninni og Lars Emil Johansen, þingforsteta og fyrrverandi formann Vest-norræna ráðsins. Gunnar Bragi er staddur á Grænlandi í tilefni formlegrar opnunar íslensku ræðisskrifstofunnar í Nuuk.

Á fundi utanríkisráðherra og Aleqa Hammond ræddu þau aukið samstarf landanna á mörgum sviðum, t.a.m. í Norðurslóðamálum, menningar- og menntamálum, heilbrigðismálum og öryggismálum á Norðurslóðum. Mikil jákvæðni einkenndi fundinn og augljóst að mikill vilji er á auknum tengslum Íslands og Grænlands. Í kjölfar fundarins undirrituðu Gunnar Bragi og Aleqa Hammond sameiginlega viljayfirlýsingu landanna um aukið samstarf.

Á fundi utanríkisráðherra með Karl Lyberth, ræddu ráðherrarnir samstarf landanna í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum. Þá lýstu Grænlendingar áhuga á að leita í auknum mæli til Íslands í tengslum við matvælaeftirlit.

Á fundi utanríkisráðherra með Lars Emil Johansen, þingforseta, var farið vel yfir vestnorrænt samstarf og möguleikana á auka vægi þess í norrænu samstarfi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert