Stunda kynlíf á salernum fyrir fatlaða

Þjóðarbókhlaðan.
Þjóðarbókhlaðan. mbl.is/Gísli Sigurðsson

„Það gekk ágætlega að athafna sig á bókhlöðunni enda aðstæður til fyrirmyndar, nóg pláss, svo eru snagar sem hægt er að hengja af sér fötin,“ sagði ungur háskólanemi í viðtali við student.is um kynlíf á háskólasvæðinu. Samkvæmt könnun vefjarins hafa fimmtán prósent háskólanema stundað kynlíf á háskólasvæðinu.

Greint er frá könnuninni á student.is. Þar segir að um óformlega könnun hafi verið að ræða sem 70 manns tóku þátt í, 43 konur og 23 karlar á aldrinum 18 til 40 ára. Fjórir sögðu ekki til um kyn.

Helmingur þátttakenda gat nefnt heppilegan stað innan háskólasvæðisins til að stunda kynlíf og nutu salerni fyrir fatlaða mestra vinsælda.

„Þetta var þrusu gaman og svo er gaman að hafa upplifað að geta horft á staðinn þar sem þetta gerðist og hlegið innra með sér,“ er haft eftir konu sem tvisvar sinnum hefur brugðið sér inn á salerni fyrir fatlaða til þess að stunda kynlíf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert