Eldur kviknaði um borð í Goðafossi

Goðafoss á siglingu út af Gróttu
Goðafoss á siglingu út af Gróttu mbl.is/Árni Sæberg

Eldur kviknaði um borð í Goðafossi um fjögur leytið í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá upplýsingafulltrúa Eimskip hefur áhöfn skipsins tekist að ná tökum á eldinum og vinnur nú að því að kæla niður skorsteinshús skipsins þar sem eldurinn kom upp. Ekkert amar að skipsverjum.

Ólafur Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, segir í samtali við mbl.is að þetta hafi farið miklu betur en áhorfðist í fyrstu því það er alltaf alvarlegt þegar eldur kemur upp um borð í skipi. Þá ekki síst í jafn slæmu veðri og nú er.

Þór, þyrlur og flugvél gæslunnar kölluð út

Goðafoss er staddur í um 70 sjómílna fjarlægð frá Færeyjum og að sögn Ólafs fylgist stjórnstöð Landhelgisgæslunnar grannt með sem og Landhelgisgæslan í Færeyjum.

Þrettán eru í áhöfn Goðafoss auk þess sem þrír farþegar eru um borð.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni kemur fram að Goðafoss sé á leið til Íslands. Áhöfnin hafi óskað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar klukkan fimm í morgun og kallaði Landhelgisgæslan þá samstundis út þyrlur Landhelgisgæslunnar, flugvél og varðskip.

Báðar þyrlurnar og flugvél Landhelgisgæslunnar fóru í loftið skömmu síðar. Varðskipið Þór er að leggja af stað áleiðis á vettvang.

Flutningaskipið Arnarfell er staðsett austur af Goðafossi og verður á staðnum um kl. 08:45. Slæmt veður er á svæðinu.

Um klukkan sex barst tilkynning frá skipinu um að þeir telja sig hafa náð tökum á eldinum.

Tilkynning frá LHG klukkan 7:10

„Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar hefur engan sakað um borð í Goðafossi. Allar einingar Landhelgisgæslunnar hafa nú verið virkjaðar auk Samhæfingarstöðvar í Skógarhlíð en skipið er staðsett í íslenskri björgunarlögsögu og hefur Landhelgisgæslan verið í sambandi við björgunarmiðstöðina í Færeyjum vegna málsins og eru þeir reiðubúnir að veita alla þá aðstoð sem þeir geta við björgunaraðgerðir.

Skipið er á leið til landsins frá Evrópu og hafði viðkomu í Færeyjum en fóru þaðan kl. 09:00 í gærmorgun. Skipið er hlaðið hefðbundnum farmi,“ segir í nýrri tilkynningu frá LHG.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert