Von á 15 þúsund femínistum

Tími til aðgerða
Tími til aðgerða

Fjölmennasta ráðstefna femínista um árabil verður haldin í Malmö 12.-15. júní á næsta ári þegar norræna kvenna- og jafnréttisráðstefnan Nordiskt Forum fer fram. Búist er við allt að fimmtán þúsund gestum á ráðstefnuna.

Hún er haldin að frumkvæði norrænna kvennahreyfinga og er markmið hennar að taka púlsinn á stöðu jafnréttismála dag og leggja línurnar fyrir baráttu morgundagsins, segir í tilkynnignu.

Meðal þeirra sem leggja munu orð í belg eru Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti, Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamót, Sofi Oksanen rithöfundur, Sanne Søndergaard grínisti, Ritt Bjerregaad fyrrverandi ráðherra, Nadje Al-Ali, rithöfundur og prófessor, Nina Bjørk blaðamaður og rithöfundur og Gail Dines prófessor.

Síðast var norræn kvennaráðstefna haldin árið 1994 í Turku í Finnlandi og þá fjölmenntu íslenskar konur og búast skipuleggjendur við því að svo verði einnig nú.

„Við höfum fundið fyrir miklum áhuga, héldum fjölmennan kynningarfund á kvennaheimilinu Hallveigarstöðum nýverið, fáum mikið af fyrirspurnum og nú hvetjum við íslenskar konur til að skrá sig sem fyrst og taka þátt í þessum sögulega viðburði,“ segir Hildur Helga Gísladóttir framkvæmdastýra Kvenfélagasambands Íslands sem setið hefur í stýrhópi ráðstefnunnar fyrir hönd Íslands, í fréttatilkynningu..

„Ráðstefnan markar tímamót í sögu norrænna kvennahreyfinganna en þetta er í fyrsta sinn sem þær skipuleggja svo umfangsmikla ráðstefnu. Og það er mjög mikill áhugi á því að taka þátt í henni á öllum Norðurlöndunum, bæði hjá opinberum aðilum, frjálsum félagasamtökum og einstaklingum,“ segir Hildur Helga sem er framkvæmdastýra Kvenfélagasambands Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert