Löggan: Ekki leggja ólöglega

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu.

Tekur lögreglan þetta sérstaklega fram í tilefni af landsleiks Íslendinga og Króata í knattspyrnu sem fram fer á Laugardalsvellinum kl. 19 í kvöld. Reynsla síðustu ára sýnir að bílastæði við völlinn eru ekki fullnýtt þegar ýmsir stórviðburðir fara þar fram. Þess í stað hafa margir lagt það í vana sinn að leggja ólöglega á Reykjavegi og Engjavegi svo aðeins tvær götur séu nefndar. Sömuleiðis er iðulega lagt ólöglega á ýmis grassvæði í Laugardalnum. Lögreglan ítrekar því tilmæli sín til ökumanna og hvetur þá til að nýta bílastæðin til fulls. Að öðrum kosti mega ökumenn búast við sektum vegna stöðubrota en gjaldið, 5000 kr., rennur í Bílastæðasjóð.

Ljóst er að ekki geta allir vallargestir lagt bílum sínum við Laugardalsvöllinn en í nágrenni hans eru víða ágæt bílastæði. Þess má geta að veðurútlitið er bærilegt, þrátt fyrir spá um dálítil él, og því ætti engum að muna um að leggja smáspöl frá leikvanginum og ganga í fáeinar mínútur að vellinum. Uppselt er á leikinn í kvöld og því viðbúið að mikil umferð verði í Laugardalnum og nágrenni hans, en fólk er hvatt til að mæta tímanlega á völlinn, segi í frétt á vef lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert