Hluti farþeganna vildi halda ferðinni áfram

Hópferðabifreiðin var á hægri ferð enda svell á veginum. Hún …
Hópferðabifreiðin var á hægri ferð enda svell á veginum. Hún rann út af veginum undan vindinum og þar feykti vindhviða henni á hliðina. mbl.is/Sigmundur Sigurgeirsson

Hluti farþega úr rútu sem fór á hliðina á Þingvallavegi í gær vildi ljúka ferðinni að Gullfossi og Geysi.

Veður og aðstæður voru hins vegar þannig að það þótti ekki ráðlegt og fóru flestir heim á hótel í Reykjavík. Tveir farþegar urðu fyrir meiðslum sem talin voru minniháttar.

Hópferðabifreið frá Kynnisferðum var með 45 erlenda ferðamenn ásamt bílstjóra og leiðsögumanni í hefðbundinni skoðunarferð um Þingvelli og að Gullfossi og Geysi. Mikil hálka var á Þingvallavegi við Hakið og rok og tók svo mikið í að rútan rann út af veginum og valt. Margir farþegar voru í bílbeltum og telur lögreglan að það hafi átt þátt í að ekki slösuðust fleiri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert