Byrja að smala um tvöleytið

Bátur Gæslunnar kominn inn fyrir brú í Kolgrafafirði en byrjað …
Bátur Gæslunnar kominn inn fyrir brú í Kolgrafafirði en byrjað verður að sprengja kl. 14. mbl.is/Árni Sæberg

Stefnt er að því að hefja aðgerðir í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi um tvöleytið. Notaðir verða tundurþræðir og síldinni smalað út úr firðinum. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur tekið yfir samhæfingu aðgerða vegna síldarinnar sem nú er í Kolgrafafirði.

Landhelgisgæslan mun sjá um framkvæmd þeirra aðgerða, sem gert er ráð fyrir að fari fram á morgun, fimmtudaginn 28. nóvember.

Aðgerðirnar voru ræddar í samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð í gær á fundi með fulltrúum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, umhverfis- og auðlindaráðuneytis, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis, Hafrannsóknarstofnunar, Umhverfisstofnunar, Vegagerðarinnar, Landhelgisgæslunnar, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Sýslumanns Snæfellinga, Stykkishólmi. Þá voru aðgerðirnar kynntar og ræddar á fundi með heimamönnum í Kolgrafafirði síðdegis í gær

Smölun síldar með smásprengjum er þekkt aðferð sem áður var notuð með góðum árangri við nótaveiðar en er nú víðast hvar bönnuð sem veiðiaðferð. Eru því nokkrar vonir bundnar við að hægt sé að hrekja síldina út úr firðinum með þessum hætti, segir á vef Landhelgisgæslunnar.

Bátar á vegum Landhelgisgæslunnar hafa í dag verið að koma smásprengjunum fyrir í firðinum. Varðskipið Þór annast vettvangsstjórn á sjó vegna aðgerðanna.

Vegna aðgerðanna verður Kolgrafafjörður lokaður í dag fyrir bátaumferð og veiði og vegurinn innan fjarðar verður sömuleiðis lokaður almennri umferð. Eftir sem áður verður opið fyrir umferð um brúna sjálfa, en ekki verður heimilt að stöðva ökutæki á brúnni.

Fylgst verður grannt með árangri aðgerðanna, magni síldar og súrefnisstöðu fjarðarins í því skyni að geta gripið til aðgerða á ný með skömmum fyrirvara þegar og ef þurfa þykir.

.

Allt með kyrrum kjörum í Kolgrafafirði ennþá.
Allt með kyrrum kjörum í Kolgrafafirði ennþá. mbl.is/Árni Sæberg
Nokkur stærri skip bíða fyrir utan brúnna yfir Kolgrafafjörð.
Nokkur stærri skip bíða fyrir utan brúnna yfir Kolgrafafjörð. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert