Ríkisstjórnin samþykkti tillögur um skuldalækkun

Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg
Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg Jim Smart

Sérfræðingahópur um höfuðstólslækkun verðtryggðra húsnæðislána skilaði ráðherranefnd um úrlausnir í skuldamálum heimilanna niðurstöðum sínum á fundi klukkan níu í morgun.

Að því búnu kynnti forsætisráðherra tillögurnar í ríkisstjórn. Ríkisstjórnin samþykkti að halda áfram vinnu við undirbúning að framkvæmd tillagnanna, m.a. smíði lagafrumvarpa á grundvelli þeirra.

Útfærsla tillagnanna felur í sér viðamestu efnahagsaðgerð ríkisstjórnarinnar til þessa, segir í tilkynningu.

Tillögurnar og aðgerðaráætlunin verða kynntar á sérstökum fréttamannafundi á morgun eftir að þær hafa fengið umfjöllun hjá þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna. Tillögurnar verða síðan kynntar á vef ráðuneytisins í framhaldinu.

Sérfræðingahópurinn var skipaður 16. ágúst sl. undir formennsku Sigurðar Hannessonar. Hópurinn hefur síðan unnið að tillögum um útfærslu og framkvæmd höfuðstólslækkunar verðtryggðra húsnæðislána.

Hópurinn byggði vinnu sína á þeim forsendum sem fram komu í þingsályktun sem samþykkt var í júní sl., þ.e. að leiðrétta skyldi þann forsendubrest sem heimili urðu fyrir vegna verðbólguskots áranna 2007-2010.

Skipaðir voru fjórir undirhópar sérfræðinganefndarinnar sem unnið hafa samhliða henni að útfærslu einstakra þátta. Einnig hafa utanaðkomandi sérfræðingar verið fengnir til að vinna afmarkaða hluta t.d. mat á efnahagslegum áhrifum. Samhliða vinnu sérfræðingahópsins hefur verið unnið að ger ð frumvarps um höfuðstólsleiðréttingar sem ríkisstjórnin væntir að geta lagt fram á yfirstandandi þingi, segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert