Verður gert í skrefum

„Það þarf að vinna nokkur frumvörp út frá tillögum hópsins. Einhver geta komið fram tiltölulega fljótlega en önnur mun taka einhverja mánuði að vinna,“ segir Sigurður Hannesson, formaður sérfræðingahóps um höfuðstólslækkun verðtryggðra lána. Áhrifin af boðuðum aðgerðum komi því ekki að fullu fram fyrr en á næsta ári.

„Það var ekki verkefni hópsins að velta fyrir sér tekjuöflun ríkissjóðs í þessu máli. Við gáfum okkur tilteknar forsendur um fjármögnun verkefnisins, þannig að það væri þá fullfjármagnað. Það kemur aðeins ein tillaga frá hópnum. Við skoðuðum tugi sviðsmynda. Fimm voru skoðaðar alla leið,“ segir Sigurður í Morgunblaðinu í dag.

Endanleg ákvörðun var tekin klukkan fimm í gærmorgun undir lok 15 klukkustunda lokafundar sérfræðingahópsins.

mbl.is mun sýna beint frá blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í Hörpu kl. 16 í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert