Fordæma atlögu að Ríkisútvarpinu

Frá fundinum í kvöld en þar var meðal annars boðið …
Frá fundinum í kvöld en þar var meðal annars boðið upp á tónlistaratriði. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fjölmenni tók þátt í samstöðufundi með Ríkisútvarpinu sem fram fór í Háskólabíói í kvöld. Ávörp á fundinum fluttu Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari, Hanna G. Sigurðardóttir útvarpskona á Rás 1, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Sigríður Ólafsdóttir lífefnafræðingur og Kolbeinn Óttarsson Proppé upplýsingafulltrúi en Guðrún Pétursdóttir lífeðlisfræðingur stjórnaði fundinum. Ennfremur segir í fréttatilkynningu að fjöldi stuðningsyfirlýsinga hafi borist fundinum frá innlendum og erlendum aðilum.

Fundurinn samþykkti ályktun þar sem fordæmd er harðlega séu atlaga „sem gerð hefur verið að starfi Ríkisútvarpsins með niðurskurði fjármuna og fjöldauppsögnum starfsfólks, nú síðast fyrir viku. Þær munu skaða verulega alla dagskrárgerð Ríkisútvarpsins og það merka og brýna starf sem þar er unnið. Ríkisútvarpið hefur þegar tekið á sig mikinn niðurskurð með verulegri fækkun starfsfólks á undanförnum misserum. En sú atlaga sem nú er gerð er svo gróf að hún ógnar tilvist Ríkisútvarpsins sem menningarstofnunar.“

Ályktunin í heild:

„Fundur haldinn í Háskólabíói til stuðnings Ríkisútvarpinu 4. desember 2013 fordæmir harðlega þá atlögu sem gerð hefur verið að starfi Ríkisútvarpsins með niðurskurði fjármuna og fjöldauppsögnum starfsfólks, nú síðast fyrir viku. Þær munu skaða verulega alla dagskrárgerð Ríkisútvarpsins og það merka og brýna starf sem þar er unnið.
Ríkisútvarpið hefur þegar tekið á sig mikinn niðurskurð með verulegri fækkun starfsfólks á undanförnum misserum. En sú atlaga sem nú er gerð er svo gróf að hún ógnar tilvist Ríkisútvarpsins sem menningarstofnunar.

Fundurinn átelur stjórn Ríkisútvarpsins fyrir aðgerðarleysi og sinnuleysi í aðdraganda þessara uppsagna sem eru í hrópandi ósamræmi við gildandi lög um Ríkisútvarpið og  skyldur þess skv. lögum og þjónustusamningi. Það er of seint að ætla að móta stefnuna þegar mörgum reyndustu starfsmönnum stofnunarinnar hefur verið sagt upp. Fundurinn krefst tafarlausra skýringa á því hvernig ákvarðanir um uppsagnir voru teknar með hliðsjón af hlutverki útvarpsins.

Þess er krafist að farið verði að lögum um tekjur Ríkisútvarpsins og að Alþingi, ríkisstjórn, stjórn ríkisútvarpsins og útvarpsstjóri standi við þá skyldu sína að verja þessa einstöku upplýsinga- og menningarstofnun sem þeim hefur tímabundið verið falin ábyrgð á. Það er skylda þeirra að skila henni sterkri í hendur þeirra sem á eftir koma.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert