Meirihlutinn ánægður með leiðréttingar

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra kynntu aðgerðir …
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra kynntu aðgerðir stjórnvalda til að leiðrétta skuldastöðu heimilanna. mbl.is/Ómar

Rúmur helmingur þátttakenda í nýrri netkönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands kveðst vera mjög eða frekar ánægður með boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til höfuðstólslækkunar íbúðalána.

Könnunin var gerð fyrir Morgunblaðið í kjölfar þess að aðgerðaráætlunin var kynnt sl. laugardag.

Alls tóku 811 einstaklingar þátt í könnuninni og gáfu þar af 673 upp afstöðu sína til þess hvort þeir væru ánægðir eða óánægðir með aðgerðirnar. Af þeim sem svöruðu spurningunni sögðust rúm 52% mjög eða frekar ánægð með aðgerðirnar, að því  er fram kemur í úttekt á niðurstöðum könnunarinnar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert