Stefán Logi ekki mættur

Stefán Blackburn, Stefán Logi Sívarsson og Hinrik Geir Helgason.
Stefán Blackburn, Stefán Logi Sívarsson og Hinrik Geir Helgason.

Aðeins einn sakborninga í máli ákæruvaldsins gegn Stefáni Loga Sívarssyni, Stefáni Blackburn og fleirum er mættur við upphaf aðalmeðferðar. Mennirnir eru vistaðir í mismunandi fangelsum en fangavörðum hefur ekki tekist að færa þá fyrir dóminn á réttum tíma.

Aðalmeðferð átti að hefjast klukkan níu en var frestað þar til fangaverðir koma með sakborninga. Dómari bar við að færð á vegum kæmi í veg fyrir það að þeir skiluðu sér á réttum tíma.

Fimm menn eru ákærðir fyrir stórfelldar líkamsárásir og frelsissviptingu, Stefán Logi Sívarsson, Stefán Blackburn, Davíð Freyr Magnússon, Hinrik Geir Helgason og Gísli Þór Gunnarsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert