Erlendir ferðamenn sem voru á leið að Geysi í Haukadal festu bíl sinn í snjó á Landvegi í dag, nærri Galtalæk. Ferðamennirnir slógu inn nafn Geysis í staðsetningartæki, en það fór með þá kolvitlausa leið sem leiddi til þess að þeir festu bíl sinn.
Ferðamennirnir höfðu samband við lögreglu og báðu um aðstoð. Bændur á næsta bæ fóru til aðstoðar og losuðu þá úr skaflinum og bentu þeim á rétta leið.