Algengustu nýburanöfnin á Íslandi árið 2013 voru Aron fyrir stráka og Katrín fyrir stelpur. Engin tvö Norðurlönd eru með sömu nöfnin efst á vinsældalistum. Þetta kemur fram í samantekt með hagtölum 2013 sem Norðurlandaráð gaf út á dögunum.
Algengustu nöfnin meðal nýbura eru eftirfarandi á Norðurlöndunum:
Þetta er þriðja árið í röð sem Aron er vinsælasta nafnið á nýfæddum drengjum, en Katrín tekur nú við af Emilíu sem vinsælasta stúlknanafnið.
<h3>Fóstureyðingar langalgengastar á Grænlandi</h3>Í norrænu hagtölunum kemur einnig fram að frjósemi kvenna er mikil á Norðurlöndum samanborin við önnur Evrópulönd. Hæst er fæðingartíðnin í Færeyjum, á Grænlandi og Íslandi, en lægst í Danmörku og Álandseyjum.
Fóstureyðingar eru hlutfallslega langalgengastar á Grænlandi af öllum Norðurlöndunum. Þar er 893 fóstrum eytt á móti hverjum 1000 fæðingum. Næsthæst er tíðnin í Svíþjóð, þar sem 335 fóstrum er eytt á móti hverjum 1000 fæðingum.
Tíðni fóstureyðinga hefur farið hækkandi í Danmörku, Noregi og Álandseyjum frá aldamótum, en lækkandi á hinum Norðurlöndunum. Á Íslandi fara fram um 200 fóstureyðingar á móti hverjum 1000 fæðingum, en tíðnin er lægst í Færeyjum, 56 á móti hverjum 1000.
Óvígð sambúð er algengasta hjúskaparformið á Norðurlöndum, en hjónaböndum hefur þó hlutfallslega fjölgað frá árinu 1995 á öllum Norðurlöndunum, nema í Danmörku þar sem þeim hefur fækkað. Skilnaðartíðni er lægst á Íslandi og í Færeyjum.
Þeim Norðurlandabúum sem kjósa að búa einir hefur fjölgað mjög á liðnum áratugum. Um 56% íbúa Norðurlanda eru nú einhleypir, miðað við um 39% í upphafi 7. áratugarins.