Fá greiddar 51.783 krónur

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Eggert

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda. Óskert uppbót nemur 51.783 krónum.

Rétt til desemberuppbótar eiga atvinnuleitendur sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hafa staðfest atvinnuleit einhvern tíma á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2013.

Greiðslur verða í hlutfalli við lengd þess tíma sem viðkomandi hefur verið skráður atvinnulaus á þessu ári. Hafi fólk verið hluta ársins á vinnumarkaði á það rétt á hlutfallslegri greiðslu desemberuppbótar frá atvinnurekanda samkvæmt kjarasamningi. Óskert desemberuppbót nemur 51.783 kr. sem eru 30% af óskertum grunnatvinnuleysisbótum. Hjá þeim sem eiga hlutfallslegan rétt verður greiðslan ekki lægri en 12.946 kr., samkvæmt frétt á vef stjórnarráðsins.

Ráðherra segir gleðilegt að tekist hafi að tryggja fjármuni til að greiða uppbótina sem skiptir atvinnuleitendur miklu máli: „Þetta tókst að lokum með góðu samstarfi þar sem margir lögðu hönd á plóg og fyrir það er ég þakklát,“ samkvæmt vef stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert