Ókeypis að hringja á jóladag

Síminn býður landsmönnum að hringja ókeypis til útlanda úr heimasímanum sínum á jóladag.

Í fréttatilkynningu segir að þeir sem eru með heimasímann skráðan hjá Símanum verða í það minnsta ekki í vanda með reikninginn eftir að hafa hringt í vini og vandamenn í útlöndum á jóladag. Síminn býður viðskiptavinum sínum að hringja út án endurgjalds í ár eins og undanfarin ár.

Ekki skiptir máli hvort hringt verður í heimasíma eða farsíma, aðeins að hringt sé úr heimasímanum.

Landsmenn hafa tekið þessari árlegu jólagjöf Símans fagnandi. Í fyrra hringdu til að mynda 75% fleiri viðskiptavinir Símans til útlanda á jóladag en dagana fyrir jól og mun fleiri en á aðfangadag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert