Hópar ferðamanna fastir á Egilsstöðum

Víða hafa ferðamenn ratað í vandræði um jólin vegna illviðris.
Víða hafa ferðamenn ratað í vandræði um jólin vegna illviðris. mbl.is/Golli

Að minnsta kosti fjórir hópar ferðamanna sitja nú veðurtepptir á Egilsstöðum og hafa verið frá því á aðfangadag.

Hóparnir telja um fimmtán manns og eru á leið hringinn í kringum landið en komast ekki norður fyrir vegna ófærðar.

Öll gistipláss og veitingastaðir hafa verið lokaðir yfir hátíðirnar svo að ferðafólkið hefur þurft að gista heima hjá bæjarbúum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert