Hellisheiði lokuð vegna umferðarslyss

Á Hellisheiði
Á Hellisheiði mbl.is/Rax

Alvarlegt umferðarslys varð á Hellisheiði fyrir stundu og hefur veginum yfir heiðina verið lokað. Umferð er beint um Þrengslaveg á meðan. 

Vegurinn er lokaður við Hveragerði að austanverðu og við Þrengslaafleggjarann að vestanverðu.

Lögregla og sjúkrabílar eru á leiðinni á vettvang bæði frá höfuðborgarsvæðinu og frá Selfossi. Ekki liggja fyrir upplýsingar um meiðsli á fólki.

Uppfært kl. 16.24: Slysið varð við árekstur tveggja bíla skammt frá brekkunni við Hveradali. Beita þurfti klippum til að losa mann úr öðrum bílnum. Verið er að flytja þrjá slasaða með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Einn þeirra mun alvarlega slasaður, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert