Mikið að gera hjá björgunarsveitum

Björgunarsveitir eru nú víða að störfum.
Björgunarsveitir eru nú víða að störfum. mbl.is/Landsbjörg

Björgunarsveitir frá Hveragerði, Árborg og Þorlákshöfn eru nú að störfum á Hellisheiði þar sem fjöldi bíla sat fastur fyrr í dag, þar með talið sjúkrabíll. Verst var ástandið við Draugahlíð þar sem um 15 bílstjórar voru í vandræðum. Búið er að loka heiðinni og Þrengslum þar sem þar er mikil ófærð og afar slæmt skyggni.

Sveitin í Vík í Mýrdal var kölluð út vegna bíls sem ók út af vegi rétt við afleggjarann að Heiðarbæ og sveitirnar á Laugarvatni og Grímsnes- og Grafningshreppi eru á leið á Lyngdalsheiði.

Þar situr rúta frá ferðaþjónustu föst eftir að hafa ekið út af veginum til að forðast árekstur við fólksbíl sem sat fastur. Farþegar rútunnar og bílsins verða líklegast fluttir á Laugarvatn en bílarnir skildir eftir. Veður á heiðinni er afar slæmt og mikill vindur gerir fólki erfitt að athafna sig.

Frétt mbl.is: Björgunarsveitir að störfum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert