Fannst látinn

mbl.is

Karlmaður fannst látinn í sjónum út af Kjalarnesi í gær, en starfsmenn Landshelgisgæslunnar voru þar við leit. Staðfest er að um er að ræða Gunnar Loga Jóhannes Logason, en síðast var vitað um ferðir hans 30. desember sl.  

Fjölskyldu Gunnars hefur verið tilkynnt um andlátið, en ekki er talið að það hafi borið að með saknæmum hætti, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma á framfæri þökkum til björgunarfólks sem tók þátt í leitinni að Gunnari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert