Máli Baldurs vísað frá MDE

Baldur Guðlaugsson og verjendur hans í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Baldur Guðlaugsson og verjendur hans í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur tekið þá ákvörðun að vísa frá máli Baldurs Guðlaugssonar gegn Íslandi. Þetta staðfestir Karl Axelsson, lögmaður Baldurs, við mbl.is. Baldur taldi að í dómi Hæstaréttar yfir honum hafi í veigamiklum atriðum verið brotinn á honum réttur í skilningi ákvæða Mannréttindasáttmála Evrópu.

Hæstiréttur dæmdi Baldur í tveggja ára fangelsi vegna innherjasvika og brota í opinberu starfi, en hann seldi hlutabréf í Landsbankanum 17. og 18. september 2008 þegar hann var ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu og sat í samráðshópi íslenskra stjórnvalda um fjármálastöðugleika.

Kæran til MDE var í fimm liðum. Í fyrsta lagi taldi Baldur að brotið hafi verið gegn rétti hans til að þurfa ekki að sæta endurtekinni málsmeðferð vegna refsiverðrar háttsemi en sá réttur sé sérstaklega varinn í viðauka við Mannréttindasáttmála Evrópu.

Í öðru lagi taldi Baldur að réttur til réttlátrar málsmeðferðar hafi ekki verið virtur þar sem hann var sakfelldur fyrir annað en hann var ákærður fyrir. Baldur var ákærður fyrir að hafa verið annar innherji í skilningi laga en sakfelldur fyrir að hafa verið tímabundinn innherji.

Í þriðja lagi taldi Baldur að rétturinn til réttlátrar málsmeðferðar hafi ekki verið virtur þar sem Hæstiréttur tók ekki afstöðu til ýmissa veigamikilla atriða í vörn Baldurs, þar með talin sú að hvorki Landsbankinn né Fjármálaeftirlitið töldu þær upplýsingar sem Baldur var dæmdur fyrir að hafa búið yfir vera innherjaupplýsingar.

Í fjórða lagi er taldi Baldura að rétturinn til réttlátrar málsmeðferðar hafi ekki verið virtur þar sem sönnunarbyrði í málinu hafi í reynd verið snúið við og hann því ekki notið þeirra grundvallarréttinda að teljast saklaust uns sekt er sönnuð.

Í fimmta dagi er taldi Baldur að réttur sinn hafi ekki verið virtur þar sem verulegur vafi leiki á því að mál hans hafi í raun notið óvilhallrar meðferðar fyrir dómi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert