Dregið um veiðileyfi í Elliðaám

Elliðaár
Elliðaár

Á fimmtudaginn verður dregið um veiðileyfi í Elliðaánum fyrir sumarið 2014.

Drátturinn fer fram á bökkum ánna í húsnæði SVFR að Rafstöðvarvegi 14 og hefst stundvíslega kl. 17:30. Áhugasömum er boðið að koma og fylgjast með en einnig verður fjallað ítarlega um útdráttinn á vef SVFR og á Facebook-síðu félagsins eftir því sem honum vindur fram.

Mikill áhugi er meðal félagsmanna SVFR að veiða í Elliðaánum enda hefur veiðin undanfarin ár verið góð. Segja má að í Elliðaánum séu félagsmenn á heimavelli enda var félagið stofnað árið 1939 utan um leigu ánna og þar hafa fjölmargir veiðimenn tekið sín fyrstu skref í laxveiðinni – lært hvernig á að kasta, lesa vatn og krækja í laxa. Barna- og unglingadagar SVFR við Elliðaárnar eru t.a.m. lykilþáttur í fræðslustarfi félagsins.

Eins og við var að búast var töluverð umframeftirspurn eftir veiðileyfum í Elliðanum næsta sumar en umsóknir eru hátt í eitt þúsund. Vegna þessa var brugðið á það ráð að láta tölvu sjá um útdrátt leyfa líkt og hefur gefist vel við útdrátt hreindýraveiðileyfa. Félagsmenn SVFR sóttu í úthlutun um tiltekna viku sem þeir helst vilja veiða í og á fimmtudaginn kemur í ljós hverjir detta í lukkupottinn. Umsóknir þeirra sem ekki fá úthlutað leyfum fara í pott og verður dregið úr honum um lausa daga sem eftir standa. Fari svo að einhverjir dagar gangi ekki út verða þeir boðnir til sölu í vefsölu félagsins.

Á vef SVFR má sjá hvaða vikur félagsmenn SVFR sóttu helst um, fyrir og eftir hádegi og stangarframboð. Flestar umsóknir eru fyrir hádegi í vikunni 12.-18. júlí og kemur ekki á óvart enda er laxinn þá genginn af krafti í ána og búinn að dreifa sér nokkuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert