Óbreytt svigrúm til hækkana

Atkvæði talin um kjarasamninga Flóafélaganna sem sömdu fyrir um 20.000 …
Atkvæði talin um kjarasamninga Flóafélaganna sem sömdu fyrir um 20.000 félagsmenn en aðeins 15,3% kusu. Já sögðu 46,6%, nei sögðu 53,1%. mbl.is/Árni Sæberg

„Er ekki rétt að næstu skref verði bara að ríkið klári sína samninga við sína starfsmenn? Þeir samningar renna út í lok næstu viku,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um þá flóknu stöðu sem upp er komin eftir að fjöldi aðildarfélaga ASÍ felldi nýgerða kjarasamninga.

Gylfi segir ASÍ-félögin nú þurfa tóm til að fara yfir stöðuna hjá sér. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, segir að svigrúmið til launabreytinga hafi ekkert aukist við þessa niðurstöðu kosninganna. „Við töldum samninginn í efri mörkum þess sem ásættanlegt væri og það mat okkar er óbreytt,“ segir hann.

Mikil óvissa er komin upp í kjaramálum eftir að meirihluti aðildarfélaga ASÍ hafnaði kjarasamningunum. Í umfjöllun í Morgunblaðinu í dag um þá stöðu sem upp er komin kennir   Sigurður Bessason, formaður Eflingar, aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar um að félagsmenn hans hafi fellt samningana. Hún hafi ekki lagt sitt af mörkum til að ná stöðugleika og temja verðbólgu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert