Tafir í umferðinni vegna veðurs

mbl.is/Soffía

„Blautum snjó kyngir nú niður á svæðinu, því fylgir töluverð hálka auk þess sem hægst hefur á umferð. Förum varlega og komum heil heim,“ segir á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en talsverðar tafir hafa orðið á umferð víða á höfuðborgarsvæðinu í kjölfar þess að snjó fór að kyngja niður.

Vegfarendur hafa haft samband við mbl.is þar sem þeir eru fastir í umferðinni sem gengur hægt fyrir sig víða. Lögreglan hvetur fólk til þess að aka varlega og miðað við aðstæður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert