Fundu síma dóttur Pauls Guilfoyle

Paul Guilfoyle er Íslendingum kunnur sem Jim Brass í þáttunum …
Paul Guilfoyle er Íslendingum kunnur sem Jim Brass í þáttunum CSI Wikipedia

Paul Guilfoyle, einn af aðalleikurunum úr sjónvarpsþáttunum CSI, sem sýndir voru á Íslandi um árabil, sendi Icelandair innilegt þakkarbréf á dögunum. Hann segir að starfsfólk flugfélagsins hafi látið hann líta út fyrir að vera besta pabba í heimi.

Í bréfinu sem hann sendi starfsfólki Icelandair segir, í lauslegri þýðingu.

„Takk fyrir að láta mig líta út fyrir að vera besti pabbi í heimi. Starfsfólk ykkar fann glænýjan síma 13 ára dóttur minnar með öllum myndunum sem hún hafði tekið á hann. Hún var í miklu uppnámi.

Kærar þakkir fyrir að koma símanum aftur til hennar þegar hún var fór um borð í vélina frá París til New York. Nærgætni ykkar og framkoma við viðskiptavini ykkar er einstök. Ég veit að þið settuð þetta smámál í forgang um helgi, án þess að ég bæði um það, heldur bara vegna skilnings ykkar á þeirri flóknu veröld sem þrettán ára stelpur búa í.

Ég kem út eins og hetja í hennar augum fyrir að bjarga þessu, en þetta er starfsfólki ykkar að þakka og því ber að hrósa. Takk fyrir að leggja þetta á ykkur. Ég er í leikarahópi CSI-þáttanna og mun segja öllum kollegum mínum hjá CBS sem eru að skipuleggja Evrópuferð að horfa sérstaklega til Icelandair.“

Undir bréfið skrifar Paul Guilfoyle.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert