0% englar báru sigur úr býtum

0% englar sigruðu í FIRST LEGO League (FLL), tækni- og …
0% englar sigruðu í FIRST LEGO League (FLL), tækni- og hönnunarkeppni grunnskólanemenda. Ljósmynd/Háskóli Íslands

Liðið 0% englar frá Brúarásskóla á Fljótsdalshéraði bar sigur úr býtum í FIRST LEGO League (FLL), tækni- og hönnunarkeppni grunnskólanemenda, sem lauk í Háskólabíói í dag. Liðið vann sér þar með þátttökurétt á Evrópumóti FIRST LEGO League sem fram fer í lok maí. Samtals tóku 13 lið víðs vegar af landinu þátt í keppninni að þessu sinni eða um 140 grunnskólanemar á aldrinum 10-15 ára.

„Keppnin hófst kl. 9 í morgun á því að liðin spreyttu sig á þraut tengdri þema keppninnar, sem í ár var náttúruöfl. Áttu þau að forrita vélmenni úr tölvustýrðu LEGO-i til að leysa þrautina. Enn fremur gerðu keppendur vísindalega rannsókn á ákveðnu efni sem einnig var tengt þemanu og jafnframt héldu liðin ítarlega dagbók um undirbúning fyrir keppnina. Þá fluttu liðin skemmtiatriði á sviðinu í stóra sal Háskólabíós og að lokum þurftu þau að gera grein fyrir því hvernig þau forrituðu vélmenni sitt,“ segir í fréttatilkynningu.

Liðið 0% Englar, sem er skipað sjö stúlkum, fékk einnig verðlaun fyrir bestu lausn í vélmennakappaleik. Liðið hlaut í viðurkenningarskyni forláta LEGO-bikar ásamt verðlaunum frá Símanum og Krumma. Þá vann sigurliðið sér jafnframt sem fyrr segir keppnisrétt á Evrópumóti First Lego League sem haldið verður á Spáni í lok maí næstkomandi. Ennfremur voru veitt verðlaun í eftirfarandi flokkum:

Besta skemmtiatriðið: El Grilló frá Seyðisfjarðarskóla
Besta liðsheildin: Krapaflóð frá Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Besta dagbókin: Hnjúkarnir frá Grunnskóla Hornafjarðar
Besta lausn í vélmennakappleik: 0% englar frá Brúarásskóla
Besta hönnun og forritun vélmennis: Bakkabræður frá Breiðholtsskóla
Besta rannsóknaverkefnið: Molten frá Naustaskóla á Akureyri

Liðið Molten hlaut ennfremur gjafabréf í Háskóla unga fólksins í Háskóla Íslands næsta sumar, en verðlaunin voru dregin úr potti með öllum liðum. Allir þátttakendur í keppninni fengu sömuleiðis FLL-medalíu í viðurkenningarskyni.

„Þetta var í áttunda sinn sem FIRST LEGO League tækni- og hönnunarkeppnin var haldin en markmiðið með henni er að blása ungu fólki í brjóst löngun til að skara fram úr á sviði tækni og vísinda. Verkfræði- og náttúruvísindasvið og Menntavísindasvið Háskóla Íslands halda utan um keppnina en helstu bakhjarlar hennar eru Nýherji, Síminn, Krumma, Össur, Verkfræðingafélag Íslands, Tæknifræðingafélag Íslands, VSÓ ráðgjöf, ÍTR, Kjörís, Vífilfell, MS, Melaskóli og Mannvit,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert