Fundu óvænt breskt tundurdufl

Ljósmynd/LHG

Landhelgisgæslunni barst nýverið tilkynning um rannsóknadufl sem hafði borist á land á Norðausturlandi og var farinn leiðangur fyrir helgina þar sem sprengjusérfræðingar áætluðu meðal annars að kanna duflið nánar. Fundu þeir þá óvænt breskt tundurdufl á Melrakkasléttu og var ákveðið í samráði við lögregluna á Þórshöfn að eyða duflinu.

Á vefsvæði Landhelgisgæslunnar segir að í tundurduflinu hafi verið 100-150 kílóa hleðsla og að slík dufl geti verið stórhættuleg þrátt fyrir að hafa legið óhreyfð á áratugi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert