Veiðigjöldin fóru með reksturinn

Aðalbjörg II í Reykjavíkurhöfn í gær. Báturinn og kvótinn fara …
Aðalbjörg II í Reykjavíkurhöfn í gær. Báturinn og kvótinn fara til Tálknafjarðar og fiskverkunarhúsið við Fiskiskóð verður selt. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Gangi áætlanir eftir verður Aðalbjörg II RE-236 og fiskverkun Aðalbjargar s.f. í Reykjavík seld til Þórsbergs ehf. á Tálknafirði í vikunni.

Útgerðarfélagið Aðalbjörg var stofnað 1932 og er eitt það elsta í Reykjavík en eigendur þess segja veiðigjöldin hafa verið rothögg fyrir fyrirtækið.

„Ytri aðstæður koma í veg fyrir að hægt sé að reka þetta áfram,“ segir Stefán Einarsson, skipstjóri og einn eigenda Aðalbjargar s.f., um söluna. Í samtali um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir hann alla útgerð nú muni færast yfir á nokkrar hendur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert