BÍ undirritar kjarasamning

Jón Rúnar Pálsson, fulltrúi SA, Magnús Pétursson ríkissáttasemjari og Hjálmar …
Jón Rúnar Pálsson, fulltrúi SA, Magnús Pétursson ríkissáttasemjari og Hjálmar Jónsson, formaður BÍ. mbl.is/Guðni

Blaðamannafélag Íslands og Samtök atvinnulífsins, sem fara með samningsumboð fyrir Árvakur, 365 og RÚV, hafa undirritað kjarasamning, en skrifað var undir samkomulagið í húsi ríkissáttasemjara í morgun. Þetta er fyrsti samningurinn sem er undirritaður í Karphúsinu á þessu ári.

Samningarnir eru í öllum aðalatriðum samhljóða þeim aðfarasamningi sem Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins gerðu með sér í desember.

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir að samningurinn sé í anda þess sem samið hafi verið um í samfélaginu að undanförnu.

„Þetta er aðfarasamningur að lengri samningi og inniber sömu hækkanir [2,8% almenna launahækkun] frá fyrsta janúar og þeir samningar sem hafa verið gerðir við Alþýðusambandið,“ segir Hjálmar í samtali við mbl.is.

„Við töldum að það væri skynsamlegt að klára þessa samninga og nota tímann til fram að næstu samningum,“ segir Hjálmar, en samningurinn gildir til ársloka 2014.

Hann segir mikilvægt að tíminn verði vel nýttur og „tryggja okkar félagsmönnum þessa hækkun frekar heldur en að lenda inni í einhverri hringiðu og þrasi“, segir hann ennfremur.

Hjálmar á von á því að samningurinn verði borinn undir atkvæði félagsmanna í næstu viku.

Í lok janúar voru nýir kjarasamningar Blaðamannafélags Íslands við Fréttatímann, DV og Birting samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á almennum félagsfundum á fjölmiðlunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert