Vill frekari athugun á lekamálinu

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðuneyti.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðuneyti. Morgunblaðið/Kristinn

Innanríkisráðuneytið hefur veitt ríkissaksóknara öll þau gögn sem til eru í ráðuneytinu um mál er varðar kæru Katrínar Oddsdóttur, hdl., fyrir hönd hælisleitanda sem synjað var um hæli með úrskurði Útlendingastofnunar og innanríkisráðuneytisins. Að auki hefur ráðuneytið farið fram á enn frekari athugun á öllum tölvutækum gögnum málsins, að höfðu samráði við Persónuvernd og með sérstöku samþykki allra starfsmanna ráðuneytisins, svo hægt sé að tryggja að ríkissaksóknari hafi allar forsendur til frekari ákvarðana um málið, segir í frétt á vef innanríkisráðuneytisins.

Líkt og komið hefur fram var strax í desember farið ítarlega yfir málið í ráðuneytinu, auk þess sem framkvæmd var sérstök athugun af rekstrarfélagi stjórnarráðsins. Sú athugun benti ekki til þess að trúnaðargögn hefðu farið frá ráðuneyti til annarra en þeirra sem lagalega eiga rétt á þeim.

Ráðuneytið fagnar ítarlegri og vandaðri skoðun ríkissaksóknara, en ítrekar að starfsmenn geta ekki meðan á þeirri skoðun stendur tjáð sig frekar um málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert