Hnoðaði þar til hjálpin barst

Bylgja Dögg Sigurðardóttir, skyndihjálparmaður ársins 2013 og Patrekur Maron Magnússon, …
Bylgja Dögg Sigurðardóttir, skyndihjálparmaður ársins 2013 og Patrekur Maron Magnússon, ungi maðurinn sem hún kom til aðstoðar þegar hann fékk hjartastopp. mbl.is/Árni Sæberg

„Ég kunni að bregðast við og var heldur ekkert hrædd, því ég hafði gert þetta margoft áður á skyndihjálparnámskeiðunum. Það skipti sköpum,“ segir Bylgja Dögg Sigurðardóttir sem valin var skyndihjálparmaður ársins 2013 af Rauða krossi Íslands í dag.

Hún sýndi hárrétt viðbrögð þegar hún kom að bifreið með hættuljósin á sem lagt hafði verið í vegkanti í Seljahverfi í Breiðholti. Ungur maður, Patrekur Maron Magnússon, sem var farþegi í bifreiðinni, fór í hjartastopp og á líf sitt að launa þeirri meðvituðu ákvörðun Bylgju að stöðva alltaf þegar hún sér fólk í vanda.

„Ég var búin að setja mér það heiti að reyna alltaf að stoppa þegar ég sæi bíla með hættuljósin á. Hvort sem það sé að hjálpa með sprungin dekk eða bara aðstoða fólk yfir höfuð. Það borgaði sig svo sannarlega að stoppa í þetta skiptið,“ segir hún.

Á leiðinni heim úr skóla

Í lok októbermánaðar á seinasta ári fékk Patrekur, sem er tvítugur háskólanemi á fyrsta ári í verkfræði, einu sinni sem oftar far með skólasystir sinni í Seljahverfið. Patrekur hugðist fara úr bílnum á miðri leið og ganga heim til sín hluta leiðinnar.

Hann teygði sig eftir skólatöskunni en datt þá skyndilega út og reisti sig ekki aftur. Vinkona hans nam staðar og lagði út í kant, setti hættuljósin á og hringdi á Neyðarlínuna. Taldi hún að Patrekar hefði fengið flogakast.

Af hreinni tilviljun var Bylgja á ferðinni á þessum tíma með börnin sín tvö. Hún sá að stúlka hafði lagt upp í kant og var að tala í símann. Hún ákvað að bjóða fram aðstoð sína og sagði stúlkan henni að vinur hennar, Patrekur, væri í flogi í framsætinu.

Lærði skyndihjálp ung að aldri

Bylgja sá hins vegar strax að svo var ekki. Hann hafði alveg misst lit og virtist líflaus. Hún ákvað að hún yrði að ná honum út úr bílnum, leggja hann upp á grasið og hefja endurlífgun.

Þrátt fyrir ungan aldur, en Bylgja er aðeins 24 ára gömul, kenndi pabbi hennar, sem var sigmaður hjá Landhelgisgæslunni, henni skyndihjálp á unga aldri.

„Þegar ég var ellefu ára sendi móðir mín mig einnig til manns sem kenndi mér réttu handtökin. Það var skilyrði að ég færi til hans til að fá að passa börn,“ útskýrir Bylgja. „Síðan þá hef ég farið mjög reglulega á skyndihjálparnámskeið.“

Lét eðlishvötina ráða

Bylgja reyndi að draga Patrek út úr bílnum en það gekk erfiðlega. Fótur hans festist í eða undir bílnum, þannig að hún reyndi að stöðva bíla og fá hjálp, en var undrandi á því hversu margir keyrðu fram hjá.

Að lokum stöðvuðu hjón og maðurinn hjálpaði Bylgju að leggja Patrek í grasið á meðan konan hugaði að börnunum tveimur sem biðu í bílnum hennar Bylgju.

Bylgja hóf þá þegar að hnoða og var einnig komin í samband við neyðarvörð á Neyðarlínunni. Hún lét eðlishvötina ráða og einbeitti sér að því að hnoða þar til hjálp barst, í stað þess að stoppa og blása á milli. Fleiri vegfarendur voru þá komnir á vettvang.

„Ég var búin að hnoða frekar lengi og segi allt í einu upphátt: „Hvernig veit ég hvort ég sé að gera þetta rétt?“ Þá var eldri maður sem stóð beint fyrir ofan mig, afalegur með eins konar pípuhatt, og sagði: „Þú ert að gera rétt, stelpa, þú ert að standa þig vel.“ Það gaf mér aukinn kraft til að halda áfram,“ segir hún.

Sjö mínútur liðu þar til lögregla kom loks á vettvang og tók við endurlífguninni. Sjúkrabíll fylgdi í kjölfarið.

Bylgja var beðin um að fylgja vinkonu Patreks á sjúkrahúsið, þar sem lögregla tók skýrslu af henni um atburðinn. Fjöskylda Patreks setti sig svo í samband við hana og flutti henni fréttir af líðan hans, sem hún segir sig hafa skipt miklu máli.

Ótrúlegur bati

Að sögn Patreks var hann í rúmar þrjár vikur á hjartadeild Landspítalans. Hann hefur náð sér ótrúlega vel eftir atburðinn og fór til dæmis í tilsett próf í skólanum í desember. Hann segist ekki eiga sér neina sögu um hjartasjúkdóma, en mjög sjaldgæft er að svo ungur maður fái skyndilega hjartastopp.

Hann segir að þau Bylgja séu í afar góðu sambandi en sem dæmi bauð fjölskylda Patreks henni í heimsókn um jólin.

Hefur þú farið á skyndihjálparnámskeið?

„Nei, ég hef aldrei farið á svona námskeið. En ég ætla að skella mér núna - engin spurning um það,“ segir Patrekur.

Fjórir til viðbótar fengu viðurkenningu

Í könnun sem gerð var á vegum Rauða krossins á Íslandi í haust kom fram að af þeim sem hafa sótt námskeið á síðustu þremur árum væru 85% sem treystu sér til að veita skyndihjálp. Ef lengra er um liðið frá námskeiði lækkar hlutfall þeirra sem myndi treysta sér til að veita skyndihjálp niður í um 65%.

Viðurkenningin var veitt í húsi Rauða krossins í dag og var um sérstakan viðhafnarviðburð að ræða, þar sem félagið fagnar níutíu ára afmæli sínu á þessu ári. Öllum þeim sem hafa verið útnefndir skyndihjálparmenn Rauða krossins á síðustu fjórtan árum, sem og þeim sem bjargað hefur verið, var boðið að samgleðjast með Bylgju Dögg í dag.

Þrír aðrir einstaklingar hlutu einnig viðurkenningu fyrir að hafa beitt skyndihjálp og bjargað lífi á eftirtektarverðan hátt:

Heiðar Arnfinnsson, Mosfellsbæ, bjargaði tengdaföður sínum eftir að hann féll við byggingu sumarbústaðar við Meðalfellsvatn og hrygg- og hálsbrotnaði.

Heimir Hansson og Sveinbjörn Björnsson, Ísafirði, hnoðuðu lífi í nágranna sinn eftir að hann fór í hjartastopp við snjómokstur.

Jóhanna Guðmundsdóttir, búsett í Flórída, sem kom konu til aðstoðar eftir að hún fór í hjartastopp rétt fyrir jólin í konuboði í Skerjafirðinum.

mbl.is/Sverrir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert