Einungis tveir af 255 ökumönnum ölvaðir

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Tvö hundruð fimmtíu og fimm ökumenn voru stöðvaðir í borginni um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Tveir ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér.

Við eftirlitið vakti það enn fremur athygli lögreglu að ljósabúnaði allmargra ökutækja var áfátt, en lögreglan hvetur ökumenn til að hafa hann alltaf í lagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert