Misstu framhjól bílsins í sprungu

Langjökull.
Langjökull. mbl.is/Loftmyndir ehf.

Björgunarsveitir frá Flúðum og Grímsnes- og Grafningshreppi eru nú á leið á Langjökul til aðstoðar jeppamönnum sem misstu framhjól bílsins í sprungu. Mennirnir eru einbíla og óku í sprungubelti með fyrrgreindum afleiðingum.

Á jöklinum er nýskafinn snjór og erfitt að átta sig á aðstæðum. Búist er við að björgunarsveitir komi að bílnum um klukkan 18:00. Veður er þokkalegt á jökli, ágætt skyggni en kalt.

Lífsbjörg í Snæfellsbæ er einnig á ferðinni en sveitin er á leið að Hólahólum þar sem rúta situr föst með bílstjóra og 45 farþegum. Ekki er talin nein hætta á ferðum, segir í tilkynningu frá Landsbjörg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert