Spá vonskuveðri sunnanlands

Veðurstofan vill vekja sérstaka athygli á því að vonskuveðri er spáð sunnantil á landinu í dag og fram á nótt. Gert er ráð fyrir stormi eða roki, meira en 20-28 m/s, syðst á landinu eftir hádegi og fram eftir nóttu.

Veðurhorfur á landinu eru þessar:

Vaxandi austanátt, 15-28 m/s sunnantil undir hádegi, hvassast undir Eyjafjöllum og í Öræfum síðdegis. Dálítil slydda eða snjókoma með köflum syðst, annars skýjað og stöku él en austan 10-18 m/s og skýjað en úrkomulítil norðantil. Úrkomumeira suðaustantil í kvöld og talsverð úrkoma þar í nótt og fram eftir morgundegi. Áfram má búast við vindhviðum, yfir 35 m/s undir Eyjafjöllum og í Öræfum á morgun. Frost 0 til 13 stig, kaldast í innsveitum, en dregur úr frosti er líður á daginn og hiti 0 til 5 stig sunnantil.

Sjá veðurvef mbl.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert